Fréttir & viðburðir
Góð ávöxtun séreignarsparnaðar
Þegar við hófum vörslu séreignarsparnaðar í apríl 2009 lögðum við upp með þá sannfæringu að óháð staða, áhættumeðvitund sem og áhersla á gagnsæi og hreinskiptni væri besta leiðin til árangurs.
Því var það okkur sönn ánægja að greina viðskiptavinum frá því að FramtíðarAuður skilaði sjóðfélögum mjög góðri ávöxtun á árinu 2009. Þó umsjón og ávöxtun séreignarsparnaðar sé langtímaverkefni erum við stolt af þessari góðu byrjun.

