Tekjur Auðar vaxa um tæp 80% milli ára.
Auður Capital hefur gert hálfsársuppgjör félagsins opinbert. Félagið skilaði tapi sem nam 26 milljónum á fyrri hluta ársins 2010, saman borið við ríflega 55 milljón króna tap fyrir sama tímabil árið 2009.
Umsvif Auðar hafa aukist umtalsvert, tekjur félagsins námu á fyrri hluta ársins 2010 rúmum 315 milljónum sem er 77% aukning frá fyrra ári. Rekstrarkostnaður sama tímabils jókst um 42%. Eignir í stýringu jukust um 60% frá síðustu áramótum og nema nú 27 milljörðum.
Þá hefur fjárfestingum á vegum AUÐAR I, sem er fagfjárfestasjóður rekinn af Auði Capital en í eigu 23 fjárfesta, þ.m.t. helstu lífeyrissjóða landsins, fjölgað til muna, en sjóðurinn festi á fyrri hluta ársins kaup á nær öllu hlutafé TALs og Yggdrasils auk þess að kaupa um 20% hlut í Securitas og Gagnavörslunni.
„Ég er mjög sátt við stöðuna“ segir Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar. „Tekjur okkar hafa aukist jafnt og þétt og vöxtur fyrirtækisins er í takt við áætlanir. Það er líka sérstaklega ánægjulegt að markaðurinn fyrir fjárfestingar í óskráðum fyrirtækjum er að opnast, aðkoma nýrra fjárfesta veitir nýju fjármagni inn í rekstur þessara fyrirtækja og dregur úr óvissuástandi þeirra sem aftur kemur hreyfingu á hagkerfið sem hefur allt of lengi verið í frosti“
Eiginfjárstaða félagsins er sem fyrr afar sterk og nemur eigið fé rúmum 1,1 milljarði. Árshlutareikningur Auðar er aðgengilegur hér á vefsíðunni.

