Auður Capital hf. kaupir Tinda verðbréf hf.
Auður Capital hf. kaupir Tinda verðbréf hf. Stjórnir Auðar Capital hf. og Tinda verðbréfa hf. hafa komist að samkomulagi um að sameina starfsemi fyrirtækjanna undir merkjum Auðar Capital. Tindar verðbréf eru með starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem verðbréfafyrirtæki og býður viðskiptavinum sínum upp á verðbréfmiðlun og fyrirtækjaráðgjöf. Starfsemi Tinda fellur sérlega vel að starfsemi Auðar Capital, sem ekki hefur boðið upp á verðbréfamiðlun áður.
„Með kaupunum fær Auður til liðs við sig öflugt teymi starfsmanna sem mun styrkja stöðu Auðar Capital sem leiðandi verðbréfafyrirtæki. Verðbréfamiðlun bætist við núverandi þjónustuframboð Auðar Capital auk þess sem kaupin munu styrkja fyrirtækjaráðgjöf félagsins. Við munum hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að veita viðskiptavinum vandaða og óháða ráðgjöf með áhættumeðvitund og ábyrga arðsemi að leiðarljósi”, segir Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar Capital.
Samkomulag Auðar Capital og Tinda verðbréfa er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins.
Samhliða kaupunum mun Vilhjálmur Þorsteinsson taka við sem stjórnarformaður sameinaðs félags. Halla Tómasdóttir sem verið hefur stjórnarformaður Auðar Capital frá stofnun félagsins mun áfram sinna fjárfestingartengdum verkefnum og sitja í stjórnum fyrir hönd félagsins.
Auður Capital er alhliða verðbréfafyrirtæki með um 30 milljarða í stýringu sem mun eftir sameiningu veita þjónustu á sviði eignastýringar, séreignalífeyrissparnaðar, verðbréfamiðlunar, fyrirtækjaráðgjafarauk þess að reka fagfjárfestasjóðinn Auði I.

