Fréttir & viðburðir

Frádrættarbærni launþega í séreignarsparnað lækkar úr 4% í 2%

21.12.2011

Samþykkt hefur verið á Alþingi að frá og með næstu áramótum verði heimild launþega til að draga frá skattskyldum tekjum til séreignasparnaðar lækkuð úr 4% í 2%. Þessi lagabreyting er tímabundin og gildir næstu þrjú ár eða frá 2012 til loka 2014. Samkvæmt lögunum er það lagt á launagreiðendur að breyta verklagi við launaútreikninga og lækka eigið framlag sjóðsfélaga niður í 2% hjá þeim sem hafa greitt hærra eigið framlag. Engin breyting verður á mótframlagi launagreiðanda, sem er almennt séð 2% að því gefnu að sjóðsfélagi greiði sjálfur 2% eigið framlag. Sjóðsfélagar geta áfram greitt eigið framlag sem er hærra en 2% en þurfa þá að óska eftir því sérstaklega við launagreiðanda sinn. Að þessum þremur árum liðnum, eða árið 2015, skal launagreiðandi hækka eigið framlag sjóðsfélaga aftur í 4% þar sem það á við.




Tungumál



audur_tomas
Óháð staða, áhættumeðvitund, gagnsæi og góð ávöxtun
Þetta vefsvæði byggir á Eplica