Hugmyndafræðin

Auður sér tækifæri í þeim samfélagsbreytingum sem eru að eiga sér stað og vænta má á næstu árum.

Í fyrsta lagi felast mikil tækifæri í vaxandi mann- og fjárauði kvenna, auknum kaupmætti þeirra og frumkvæði til athafna. Fjölmargar erlendar rannsóknir sýna fram á að fyrirtæki sem njóta aðkomu kvenna í lykilhlutverkum skila betri arðsemi þegar til lengri tíma er litið.

Í öðru lagi munu neytendur og fjárfestar gera auknar kröfur um samfélagslega og siðferðislega ábyrgð fyrirtækja. Fyrirtæki sem leggja áherslu  á þessa þætti munu öðlast bæði samkeppnisforskot og viðskiptalegan ávinning.  Við höfnum því viðhorfi að velja þurfi á milli fjárhagslegrar arðsemi og samfélagslegrar ábyrgðar. Við erum sannfærð um að það felist fjárhagslegur ávinningur í því að sýna samfélagslega ábyrgð.


Gildi Auðar:

Með því að vera óháð komum við í veg fyrir hættu á hagsmunaárekstrum milli fyrirtækisins og viðskiptavina þess.  Auður Capital er sjálfstætt fyrirtæki í meirihlutaeigu starfsmanna, stundar ekki viðskipti fyrir eigin reikning né selur eigin verðbréfasjóði.

Áhættumeðvitund er einn af lykilþáttunum í starfsemi Auðar.  Fjárfestingar eru ekki áhættulausar, en það er grundvallaratriði að taka upplýsta og vel ígrundaða ákvörðun um áhættu. 

Við leggjum mikið uppúr gagnsæi og hreinskiptni í samskiptum og því að hafa upplýsingar aðgengilegar.

Mannleg nálgun snýst um virðingu fyrir einstaklingum og fjölbreytileika þeirra.  Mannleg nálgun snýst einnig um að nota hyggjuvit og innsæi við fjárfestingarákvarðanir.

Ábyrg arðsemi þýðir að við viljum skila fyrirtækinu og viðskiptavinum hagnaði en okkur er ekki sama hvernig.   Með því að bera virðingu fyrir umhverfinu, mannauðnum og samfélaginu náum við betri langtímaárangri fyrir alla. 


Senda síðu




Tungumál



innside_banners_brynja
Langtímaárangur er lykilatrið í fjárfestingum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica