Um Auði

Auður Capital veitir fjárfestingatengda þjónustu, þar með talið eignastýringu og vörslu séreignarsparnaðar, miðlun verðbréfafyrirtækjaráðgjöf og rekstur fagfjárfestasjóða

Auður hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME.

Auður Capital boðar breyttar áherslur í fjármálastarfsemi

Auður Capital var stofnað árið 2007 með það að markmiði að auka jafnvægi og fjölbreytni í fjármálaþjónustu.  Við teljum að í fjármálageiranum hafi skort hreinskiptin samskipti, heiðarleika og ábyrgð.  Í starfsemi okkar leggjum við áherslu á langtímaárangur og virðingu gagnvart einstaklingum, samfélagi og umhverfi. 

 

Ekki HVAÐ heldur HVERNIG:

Það eru ekki þjónustuþættirnir sem slíkir sem greina okkur frá samkeppnisaðilum heldur HVERNIG við veitum þjónustuna. 


Leiðarljós  Auðar eru:

  • óháð staða
  • áhættumeðvitund
  • gagnsæi og hreinskiptni
  • mannleg nálgun
  • ábyrg arðsemi



Meira um hugmyndafræði Auðar

Senda grein



Tungumál


innside_banners_halla

innside_banners_brynja
Langtímaárangur er lykilatrið í fjárfestingum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica