Bækur með boðskap
Góðar bækur eru gjarnan þær sem koma lesendum á óvart, opna augu þeirra fyrir nýjum hlutum og síðast en ekki síst vekja upp áhugaverðar spurningar. Hér er gerð grein fyrir þremur eftirtektarverðum bókum sem allar fjalla um viðskipti frá ólíkum sjónarhornum, en lykilboðskapur þeirra felst í mikilvægi heilbrigðrar skynsemi og langtímahugsunar.
Fyrir rúmum áratug kom út bókin Natural Capitalism eftir frumkvöðulinn og hugmyndafræðinginn Paul Hawken ásamt Amory Lovins og L. Hunter Lovins. Boðskapur bókarinnar vakti mikla athygli á sínum tíma og er Paul Hawken orðin velþekktur fyrirlesari og kom m.a. í þeim tilgangi til Íslands haustið 2008. Megin boðskapur bókarinnar er sá að það eru fjölmörg tækifæri til að sameina hagsmuni viðskiptalífs og umhverfisins með því að hugsa margvíslega hluti upp á nýtt og snúa þannig frá núverandi neyslu og framleiðsluaðferðum í vestrænum heimi sem ganga svo hratt á auðlindir jarðarinnar að það stefnir í óefni sem mun koma niður á síðari kynslóðum. Tekin eru fjölmörg fróðleg dæmi um sóun og ranga forgangsröðun, og bent á hvernig hægt er að viðhalda lífsgæðum á sama tíma og dregið er úr mengun og orkunotkun. Sjálfbærni er hugtak sem fær mikla athygli í bókinni og er það vel, þar sem það er ansi vítækt orð og þarfnast góðrar skýringar. Það er ekki að ástæðulausu að bæði afturhaldssamir umhverfisverndarsinnar og framsæknir viðskiptaforkólfar hrósuðu þessari bók fyrir nýja nálgun, og er það ekki síst vegna þeirra spurninga sem bókin vekur, en þeirra svara sem hún veitir.
Bókin Stirring it up: How to make money and save the world, eftir Gary Hirshberg, stofnanda og forstjóra Stonyfield Farm , sameinar á skemmtilegan hátt frumkvöðlasögu, sjálfbærni og viðskipti. Þetta er áhrifarík og skemmtileg saga frumkvöðuls sem lagði allt undir fyrir 27 árum til að koma af stað framleiðslu á lífrænni jógúrt í Bandaríkjunum og náði að byggja upp stórt og arðbært fyrirtæki sem hefur leitt þróun í gamalgrónum geira í átt að sjálfbærni. Tekin eru fjölmörg dæmi um það hvernig Gary tókst með margvíslegum aðgerðum að stækka félagið og auka arðsemi þess á sama tíma og félagið tók upp sjálfbærari framleiðsluaðferðir. Frumkvöðlavinkillinn í sögunni er mjög skemmtilegur, og endurspeglar ferli frukvöðulsins sem leggur allt undir og býr við mikla óvissu í upphafi en fær loks byr í seglin og nær að byggja upp stórveldi 25 árum eftir stofnun fyrirtækisins.
Að lokum er það bókin Last man standing: The Ascent of Jamie Dimon and JPMorgan Chase eftir Duff McDonald sem nýlega kom út og fjallar um Jamie Dimon forstjóra J.P. Morgan. Annars vegar fjallar bókin um sterkan leiðtoga, sem með skýrri sýn, einstökum dugnaði, og ekki síst þolinmæði náði efsta þrepinu í leiðandi banka í Bandaríkjunum. Hins vegar er bókin mjög góð söguskýring á bandarískum fjármálamarkað undanfarin 25 ár þar sem vel kemur í ljós að skuldsetningarbóla undanfarinna ára er síður en svo sú fyrsta sinnar tegundar. Dimon er sterkur og drífandi leiðtogi, sem vill hafa þéttan hóp af traustu samstarfsfólki í kringum sig á sama tíma og hann vill skilja einstök atriði í rekstri bankans, svo sem upplýsingakerfi og áhættustýringu, til að hafa heildaryfirsýn yfir reksturinn. Það var þessi blanda, ásamt persónuleika og sýn Dimon sem kom J.P. Morgan í leiðandi stöðu á bandarískum fjármálamarkaði á meðan samkeppnisaðilarnir börðust í bökkum. Dimon telur að bankar eigi að leggja allt kapp á traustar eignir (e. fortress balance sheet), halda sig frá yfirtökum (á yfirverði) í uppsveiflu, en nýta frekar sterka stöðu í niðursveiflu til að kaupa upp samkeppnisaðila á miklum afslætti.

