• thoranna_article_portrait

Hvar voru stjórnirnar?

Fall bankanna og margra stórra fyrirtækja hefur kallað á fjölmargar spurningar um ábyrgð stjórna og stjórnarmanna.  Hvaða hlutverki gegndu stjórnirnar? Hefði skilvirkari starfsemi stjórna geta komið í veg fyrir að það fór sem fór?  Hvers vegna virkuðu tilmæli um góða stjórnarhætti ekki sem skyldi?

Einsleitni og skortur á málefnalegri gagnrýni

Þó að reglur og leiðbeiningar séu góðra gjalda verðar leysa þau ekki allan vanda.  Vandamál stjórna hafa að stærstum hluta snúist um samsetningu og verklag, og almennt má segja að málefnalega gagnrýni hafi skort.    Stjórnir hafa verið einsleitar og er afleiðingin gjarnan sú að umræður og gagnrýni verða takmörkuð.  Ennfremur má segja að ákveðnar stöðnunar hafi gætt í verklagi stjórna því vaninn virtist vera sá að lítil umræða átti sér stað á stjórnarfundi og  margar stórar ákvarðanir teknar utan stjórnarfunda. 

Stjórnir hafa löngum þótt lítið virkar.  Þar sem stjórnir eru samsettar af utanaðkomandi aðilum hafa þær á stundum þótt fjarlægar raunveruleika fyrirtækisins og það gagn sem af þeim mætti hafa þótt takmarkað. Ennfremur hafa stjórnarmenn mismikinn tíma til að setja sig ofan í málefni félagsins og aðsteðjandi ákvarðanatöku.  Hagsmunir stjórnenda hafa gjarnan verið þeir að ná að keyra mál hratt í gegn um stjórnina, og því hefur þótt akkur af því að skipa stjórnina aðilum sem líklegir væru til að fylgja stjórnendum að málum, eða svokölluðum  „já mönnum“.  Þetta átti ekki hvað síst við í uppganginum mikla þegar mestu máli skipti að vera fljótur að bregðast við, en því miður kom á daginn að kappið var meira en forsjáin.   

Öfgarnar í hina áttina eru ekki síður óheppilegar, það er þegar stjórnin verður of tengd daglegri stjórnun og missir þannig hæfileikan til að veita stjórnendum aðhald.  Oft gerðist þetta með þeim hætti að einn eða tveir stjórnarmenn, gjarnan stjórnarformaður, gerðust virkir þátttakendur í málefnum félagsins, en aðrir stjórnarmenn urðu að sama skapi óvirkari og aðhaldshlutverk stjórnarinnar því takmarkað.    

Úr viðjum vanans

Hlutverk stjórna er að sjá til þess að stjórnendur  fyrirtækisins axli ábyrgð.   Verkefni stjórna eiga því að snúast um að og bæta gæði stjórnunar með því að spyrja gagnrýninna spurninga.   Til þess að svo megi verða þarf stjórnin að vera skipuð aðilum sem hafa bæði getu og vilja til að kryfja málin til mergjar og knýja stjórnendur til ábyrgðar.   Með öðrum orðum; stjórnarmenn þurfa að hafa hæfileika til að rækja störf sín, vera tilbúnir til að starfa af heilindum samkvæmt eigin skynsemi og sannfæringu (þ.e. ekki draga taum ákveðinna hagsmunaaðila) og  endurspegla ólík viðhorf til þess að hægt sé að skoða málin frá sem flestum hliðum. 

Mikilvægt er að stjórnarmenn sammælist um hver séu megin markmiðin með störfum stjórnarinnar, en séu síðan tilbúnir að eiga hreinskiptnar og gagnrýnar umræður um hvernig markmiðum stjórnarinnar og fyrirtækisins sé best náð.   Átök innan stjórna hafa sjaldnast þótt af hinu góða enda hafa þau oftar en ekki snúist um valdabaráttu.  Rökræður og átök sem einkennast af einlægum vilja til að komast að niðurstöðu um hvaða leiðir séu bestar fyrir hag fyrirtækisins eru hins vegar nauðsynlegur þáttur í að stjórn ræki hlutverk sitt.  Fyrirtæki og stjórnendur sem ná að nýta stjórnir til þess að sannreyna ágæti hugmynda og áætlana geta vænst þess að bæta gæði ákvörðunartöku og þar með langtíma árangur fyrirtækisins.  Ef í stjórn velst fólk með mikla og fjölbreytilega reynslu er hugsanlega hægt að koma í veg fyrir mistök eða að leiðbeina félaginu í betri farveg.

Tími breytinga

Í kjölfar kolsteypu fjölmargra fyrirtækja er tímabært að staldra við og hugleiða hvernig koma megi í veg fyrir að slíkt gerist aftur.  Stór þáttur hlýtur að vera undir stjórnum fyrirtækja kominn.  Því er mikilvægt að hugað sé að því að stjórnir séu rétt skipaðar svo þær geti veitt fyrirtækjum nægilegt aðhald og stuðning.  Þannig aukast líkur á að árangur fyrirtækja verði uppbyggilegur og viðvarandi. 

Senda grein

Auður djúpúðga
thoranna_article_portrait

5 Mar 2010

Senda síðu

Tungumál

innside_banners_baldur
Það felast ómæld vaxtartækifæri í fyrirtækjum sem leggja áherslu á sjálfbærni
Þetta vefsvæði byggir á Eplica