• thoranna_article_portrait

Að kjósa með fótunum

Máltækið „að kjósa með fótunum“ er enskuskotin íslenska, komin af enska máltakinu „to vote with your feet“ sem hefur verið notað til að lýsa háttarlagi fjárfesta sem tjá afstöðu sína til fyrirtækja og fjárfestinga með því að kaupa, halda, en þó aðallega að selja  viðkomandi fjárfestingu.  Það er ýmislegt sem bendir til þess að kaupendur vöru og þjónustu muni í vaxandi mæli tileinka sér svipað háttarlag og tjá hug sinn í verki með því að beina viðskiptum sínum markvisst til fyrirtækja sem stunda ábyrga og heiðarlega viðskiptahætti. 

Umræða um ábyrgð fyrirtækja gagnvart samfélagi og umhverfi fer stöðugt vaxandi.  Í kjölfar bankakreppu og efnahagshruns er sífellt stærri hópur neytenda sem lýsir vonbrigðum sínum, vanþóknun og vantrú í garð fyrirtækja og stjórnenda sem hafa brugðist trausti viðskiptavina sinna.  Krafan um aukna ábyrgð hefur sjaldan verið háværari.  Á sama tíma kvarta neytendur um skort á valkostum og að í raun sé lítill sem enginn munur milli fyrirtækja þó auglýsingar og kynningarefni fullyrði annað. 

Við aðstæður sem þessar má segja að viðskiptatækifæri skapist.  Fyrirtæki sem sýna, ekki einungis í orði, heldur með raunverulegum aðgerðum að þau byggi starfsemi sína á heiðarleika, sanngirni og langtímasjónarmiðum munu að líkindum njóta brautargengis hjá neytendum og þannig hafa möguleika á að ná betri árangri sem aftur leiðir til þess að áhrifa þeirra og hugsunarháttar fer að gæta víða. 

Enn sem komið er er samtakamáttur neytenda  þó tiltölulega lítill.  Allt of margir neytendur sætta sig við slaka frammistöðu fyrirtækja, yppa öxlum og pirra sig yfir ástandinu, en gera ekki neitt því þeir hafa ekki trú á að nokkuð breytist.  Valdið er hins vegar í að stórum hluta í höndum neytenda.  Líkt og stjórnmálamenn fá ekki haldið sæti sínu nema í krafti stuðnings frá kjósendum, geta fyrirtæki ekki haldið velli nema að þau nái að halda í og bæta við sig viðskiptavinum.  Neytendur geta því haft mikil áhrif á hegðun og framkomu fyrirtækja með því að beina viðskiptum sínum og kaupákvörðunum til þeirra fyrirtækja sem ná bæði að skapa virði fyrir neytendur og sýna ábyrgð og gott viðskiptasiðferði .  

Fleiri og fleiri fyrirtæki hafa áttað sig á því að örlög þeirra og árangur eru í höndum viðskiptavina og sú staðreynd er fyrirtækjum hvati til að vanda til verka.  Með samstilltu átaki geta fyrirtæki og neytendur gert róttækar breytingar á leikreglum viðskiptalífsins.   Ávinningurinn er skilvirkara kerfi sem byggir á gagnkvæmum ávinningi fyrirtækja, viðskiptavina og samfélags.  Því fyrr sem neytendur átta sig á valdi sínu og taka til við að beita því valdi með því að „kjósa með fótunum“, því fyrr munum við sjá framfarir og ávinning.
Senda grein

Auður djúpúðga
thoranna_article_portrait

2 Sep 2010

Senda síðu

Tungumál

innside_banners_brynja
Langtímaárangur er lykilatrið í fjárfestingum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica