Samfélagsábyrgð

Auður trúir að fyrirtækjum beri skylda til að sýna ábyrga hegðun.  Sú ábyrgð nær til þess hvernig við högum allri okkar starfsemi, hvernig við tökum afstöðu til mála, tjáum okkur og tökum ákvarðanir. Við teljum það ennfremur hlutverk okkar að hvetja aðra til aukinnar meðvitundar um samfélagið og umhverfið.

Ábyrgðin felst ekki síst í heiðarlegum og gagnsæjum viðskiptaháttum, sem og virðingu fyrir starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum. Við leggjum okkur fram um að ná ávallt gagnkvæmum ávinningi fyrir alla hagsmunaaðila. Við teljum fylgni við lög, heiðarleiki og gott siðferði vera lykilatriði í starfseminni. 

Við gerum okkur grein fyrir því að fyrirtækið er hluti af stærri heild sem samanstendur af samfélagi og umhverfi, mannauð og náttúruauðlindum.  Til þess að ná langtímaárangri þarf að umgangast þessar auðlindir af virðingu og alúð, þannig að næstu kynslóðir fái einnig notið. 

Við viljum hafa jákvæð áhrif á viðskiptahætti og auka ábyrgð gagnvart samfélagi og umhverfi bæði með því að vanda okkar eigin hegðun og ákvarðanatöku, og ekki síður í gegn um fjárfestingar okkar. 

Í fjárfestingum leitumst við við að fjárfesta á samfélagslega ábyrgan hátt og hvetjum þau fyrirtæki sem fagfjárfestasjóðir okkar fjárfesta í með beinum hætti til aukinnar ábyrgðar.          

Við höfnum því viðhorfi að velja þurfi á milli fjárhagslegrar arðsemi og samfélagslegs ávinnings.  Það er sannfæring okkar að jafnvægi milli fjárhagslegrar arðsemi og samfélagslegrar ábyrgðar sé einmitt tækifæri til að ná betri langtímaárangri á báðum sviðum.    Við teljum að það felist fjárhagslegur ávinningur í því að axla samfélagslega ábyrgð.  

 

Góðgerðarstarf

Góðgerðarstarf er hluti af stefnu um samfélagsábyrgð.  Við teljum það góðan sið að fyrirtæki láti eitthvað af hendi rakna til samfélagsaðstoðar. 

Góðgerðarverkefni Auðar eru tvö; AlheimsAuður og Dagsverk Auðar.

Senda síðu




Tungumál



innside_banners_lara
Við erum í góðu sambandi við viðskiptavini
Þetta vefsvæði byggir á Eplica