Dagsverk Auðar

 

Dagsverk Auðar er samfélagsverkefni starfsmanna Auðar Capital.  Það felst í því að starfsmenn gefa andvirði launa sinna í einn dag á ári í verðugt málefni.  Ennfremur vinna allir starfsmenn Auðar sem nemur einum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis.

Sjálfboðastarf

Í lok ársins 2008 hóf Dagsverk Auðar samstarf við Rauða kross Íslands.  Starfsmenn Auðar standa vaktina í verslun Rauða krossins að Laugarvegi annan hvern fimmtudagseftirmiðdag. 

Verslanir Rauða krossins selja fatnað og annan varning sem fellur til í fatasöfnunum.  Sjálfboðaliðar sjá að langmestu leyti um afgreiðslu í verslununum og rennur því allur afrakstur starfseminnar til hjálparstarfs og neyðaraðstoðar bæði innanlands og utan.  Starfsemin fellur í senn í sér fjáröflun til neyðaraðstoðar sem og kjörið tækifæri til endurnýtingar, kaupum á ódýrri vöru og möguleika á að eignast eitthvað einstakt. 

Sjálfboðastarf í þágu góðs málefnis er mannbætandi og hvetjum við  öll fyrirtæki til að gefa starfsfólki sínu tækifæri á að sinna sjálfboðastarfi.  

Fjárframlög

Allir starfsmenn Auðar gefa árlega andvirði einna dagslauna til samfélagsuppbyggingar, góðgerðarstarfs og neyðaraðstoðar. 

Góðgerðarsamtök geta sótt um framlag frá sjóðnum dagsverk@audur.is 

Þriggja manna nefnd skipuð starfsmönnum Auðar tekur ákvarðanir um styrkveitingar. Úthlutanir fara fram í apríl og desember ár hvert. 


Senda síðu




Tungumál



innside_banners_hilmar
Við leggjum áherslu á gagnsæi og gott upplýsingaflæði
Þetta vefsvæði byggir á Eplica