Stjórn
Stjórn Auðar Capital skipa:
Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir
Halla Tómasdóttir
David Adams
Þóranna Jónsdóttir
Varamenn eru:
Hallgrímur Snorrason
Gunnar Þór Pétursson
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Ingunn Wernersdóttir
Aðalmenn í stjórn Auðar Capital

Vilhjálmur Þorsteinsson hefur verið stjórnarformaður Auðar Capital frá nóvember 2011. Hann starfar sem fjárfestir, einkum á sviði upplýsingatækni. Hann er stjórnarformaður Verne Holding og situr í stjórnum nokkurra frumkvöðla- og upplýsingatæknifyrirtækja meðal annars CCP, DataMarket, Gogogic og Gogoyoko. Vilhjálmur hefur fengist við hugbúnaðargerð frá árinu 1982 og starfað í hugbúnaðargeiranum bæði í Bretlandi, Hollandi og á Íslandi áður en hann snéri sér að fjárfestingum og stjórnun.

Halla Tómasdóttir er annar stofnenda Auðar Capital og var stjórnarformaður félagsins frá stofnun til nóvember 2011. Hún var áður framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og starfaði í sex ár hjá Háskólanum í Reykjavík þar sem hún var lykilþátttakandi í uppbyggingu skólans. Hún stofnaði og stýrði Stjórnendaskóla HR og AUÐI í krafti kvenna og var einnig lektor við viðskiptadeild. Halla stundaði nám og störf í Bandaríkjunum í 10 ár og starfaði meðal annars hjá M&M/Mars og Pepsi Cola, hún lauk viðskiptafræðiprófi með áherslu á mannauðsstjórnun frá Auburn University í Alabama og MBA prófi í alþjóðlegum viðskiptum frá Thunderbird í Arizona. Halla hefur setið í stjórn fjölmargra fyrirtækja.

Gudbjörg Edda Eggertsdóttir er forstjóri Actavis á Íslandi. Guðbjörg Edda lauk kandídatsprófi í lyfjafræði og var ráðin sem markaðsstjóri Delta hf (nú hluti af Actavis) árið 1983. Hún var aðstoðarforstjóri Delta á árunum 1999-2002, auk þess að sinna sölu til þriðja aðila og hafa umsjón með útflutningi og þróun. Eftir sameiningu Delta og Pharmaco árið 2002 var hún skipuð í framkvæmdastjórn sameinaðs félags og situr nú í framkvæmdastjórn Actavis. Guðbjörg Edda hefur verið virk í starfi Lyfjafræðingafélags Íslands og starfaði m.a. í fjögur ár sem varaformaður félagsins og önnur fjögur ár sem formaður.
David Adams lauk námi í hagfræði og stærðfræði frá Loughborough University í Englandi árið 1984. David vinnur að því að aðstoða fyrirtæki við að finna eigin lausnir í vörumerkjastjórnun (branding) og viðskiptaþróun (innovation processes). Hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki árið 2002 og byggir hugmyndafræði sína á 20 ára reynslu af markaðs- og samskiptamálum m.a. með vörumerkjarisum á borð við Procter & Gamble, Nestlé, Mars og Shell. Í dag sérhæfir David sig í vinnu með leiðandi norrænum fyrirtækjum sem hafa haslað sér völl á alþjóðlegum vettvangi. Meðal samstarfsaðila síðari árin eru Novo Nordisk, Actavis og Coloplast.
Dr. Þóranna Jónsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar í Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri þjónustu- og samskiptasviðs Auðar Capital. Hún var framkvæmdastjóri Artasan ehf og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Veritas Capital hf (áður hluti Vistor hf). Þóranna starfaði um árabil sem lektor, aðstoðardeildarforseti og forstöðumaður BS náms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem hún sinnti rannsóknum, kennslu og stjórnendafræðslu. Þá var hún á árum áður framkvæmdastjórai Lyf & heilsu og markaðsstjóri Íbúðarlánasjóðs. Þóranna er með doktorsgráðu á sviði stjórnarhátta (e. corporate governance) frá Cranfield University í Bretlandi, , MBA gráðu frá IESE í Barcelona og meistaragráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Þóranna lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2008.
Stjórn félagsins ákvað á fundi sínum í maí 2010 að setja á laggirnar endurskoðunarnefnd.
Formaður nefndarinnar er Hallgrímur Snorrason. Aðrir nefndarmenn eru Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og Gunnar Þór Pétursson.
Hallgrímur Snorrason lauk B.Sc. prófi í hagfræði við Háskólann í Edinborg 1969 og M.Sc. prófi í hagfræði frá Háskólanum í Lundi 1971. Hallgrímur var hagstofustjóri árin 1985-2007, en hafði áður starfað sem hagfræðingur við hagrannsóknardeild Framkvæmdastofnunar ríkisins frá 1972, við Þjóðhagsstofnun frá 1974 og verið aðstoðarforstjóri hennar 1980-1984. Hann var lektor í hagfræði við Háskólann í Lundi 1970-1971. Hallgrímur hefur gegnt formennsku eða tekið þátt í starfi fjölmargra stjórnskipaðra nefnda og setið í stjórnum fyrirtækja. Hann hefur tekið mikinn þátt í fjölþjóðlegu samstarfi um efnahagsmál og hagskýrslugerð, sérstaklega á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Evrópska efnahagssvæðisins. Hallgrímur starfar nú sem sjálfstæður ráðgjafi við skipulag og uppbyggingu opinberrar hagskýrslugerðar, einkum í þróunarríkjum.

Gunnar Þór Pétursson lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1997 og meistaraprófi í Evrópurétti, LL.M., frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 1998. Hann hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2002. Gunnar Þór starfaði hjá Eftirlitsstofnun EFTA 1999-2004, hjá LOGOS lögmannsþjónustu 2004-2005 og hjá Actavis Group 2005-2008. Gunnar Þór hefur kennt Evrópurétt við lagadeild Háskólans í Reykjavík síðan 2005 og er sérfræðingur við deildina síðan 2008. Gunnar Þór er einnig stundakennari við Panthéon-Assas (Paris II)
lagadeildina í París, Frakklandi og við lagadeildina í Háskólanum í Lundi, Svíþjóð.
Starfshætti stjórnar og starfsreglur endurskoðunarnefndar Auðar má sjá hér.

