Stofnendur
Auður var stofnuð árið 2007 af þeim Höllu Tómasdóttur sem þá var framkvæmastjóri Viðskiptaráðs Íslands og Kristínu Pétursdóttur fyrrverandi aðstoðarforstjóra Kaupþing Singer & Friedlander í London.
En hvernig dettur tveimur konum sem notið hafa velgengni í viðskiptalífinu í hug að yfirgefa góðar og öruggar stöður til að stofna fjármálafyrirtæki?
Svarið er einfalt. Við höfum mikinn áhuga á viðskiptum og langaði til að stofna fjármálafyrirtæki sem byggði á okkar eigin hugmyndafræði og gildsmati. Við sáum líka viðskiptatækifæri sem var einfaldlega of gott til að láta framhjá sér fara.
Við vorum í kringum fertugsaldurinn þegar við fórum, hvor í sínu lagi, að líta yfir farinn veg. Við komumst að því að þrátt fyrir góðan árangur í starfi þá vildum við eitthvað meira. Við höfum hitt ófáar konurnar sem segja okkur svipaða sögu.
Eftir 20 árangursrík ár í alþjóðlegu viðskipta- og fjármálalífi vildum við láta næstu 20 ár skila okkur meiru en eingöngu fjárhagslegum ávinningi. Við ákváðum að skapa fyrirtæki sem beindi sjónum sínum að þeim viðskiptatækifærum sem eru að verða til í breyttu samfélagi. Við vildum að fyrirtækið hefði öfluga framtíðarsýn og áhugaverða hugmyndafræði og fyrirtækjamenningu og þannig skapa bæði fjárhagslegan og samfélagslegan ávinning.
Það tók um það bil eina meðgöngu að setja niður HVAÐA þjónustu Auður Capital myndi bjóða. Við ákváðum að einbeita okkur að fjárfestingatengdri þjónustu svo sem eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf og rekstur fagfjárfestasjóða (Private Equity). Það tók einhverja mánuði til viðbótar að setja niður HVERNIG við ætlum að gera hlutina. Við erum sannfærðar um að það er HVERNIG við gerum hlutina sem greinir okkur frá öðrum fjármálafyrirtækjum sem þú hefur kynnst.
Við erum svo lánsamar að hafa fengið til liðs við okkur frábæran hóp sem deilir sýn og gildum Auðar með okkur. Mótunarferli Auðar hefur falið í sér gjöfula áskorun. Nú þegar Auður hefur litið dagsins ljós erum við bæði stoltar og eftirvæntingarfullar. Við viljum með ánægju deila uppvexti Auðar með ykkur og hvetjum þig til að senda okkur línu og segja okkur frá hugmyndum þínum um hvernig Auður megi vaxa.

Við vorum í kringum fertugsaldurinn þegar við fórum, hvor í sínu lagi, að líta yfir farinn veg. Við komumst að því að þrátt fyrir góðan árangur í starfi þá vildum við eitthvað meira. Við höfum hitt ófáar konurnar sem segja okkur svipaða sögu. 